Dagur leikskólans
Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín, eða fyrir sléttum 70 árum.
Leikskólakennarar, stjórnendur leikskólanna og starfsfólk er hvatt til að vekja athygli á fagmennsku og því frábæra starfi sem unnið er í leikskólum landsins á degi hverjum.
Upplagt er að deila myndum og frásögnum á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #dagurleikskolans2020.