Þorrablót
Það er hefð fyrir því hér á Laufási að halda Þorrablót á Bóndaginn. Þá gerum við þorra kórónur, borðum þorramat og að þessu sinni fengum við víking í heimsókn í fullum skrúða. Hann sýndi okkur vopnin sín, víkingaklæðnað og allskonar handgert glingur. Börnin voru mjög glöð að fá þennan alvuru víking í heimsókn enda mikið verið rætt um víkingatímann núna í aðdraganda þorrans. Meðal annars sagði víkingurinn okkur frá því hvernig víkingar börðust, gerðu vopnin sín, hvernig þeir borguðu og margt fleira.
Allir voru ánægðir með daginn!