VALMYND ×

Umsóknir um tekjutengdan afslátt

 

Endurnýja þarf umsóknir á niðurgreiðslum á leikskólagjöldum fyrir skólaárið 2026-2027

Afsláttur á leikskólagjöldum er tekjutengdur og geta þeir foreldrar og forráðamenn sem falla undir sett tekjuviðmið sótt um að fá 40% afslátt af leikskólagjöldum, utan fæðisgjalda. 

Tekjuviðmiðinn miðað við heildartekjur heimilis og eru eftirfarandi: Foreldrar/forráðamenn sem eru með mánaðartekjur allt að 795.000 krónur eða árslaun 0-9.540.000 kr. Miðað er við meðal tekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu þrjá mánuði þegar að umsókn er send inn. 

Reglurnar hafa enginn áhrif á systkyna afslátt sem helst óbreyttur en þó er ekki veittur systkyna afsláttur og tekjutengdur í einu. 

Umsókn tekjutengds afsláttar fyrir haustönn skal berast fyrir 30. júní 2026 og skal fylgja yfirlit úr staðgreiðsluskrá fyrir síðustu þrjá mánuði. 

Ekki þarf að sækja um mánaðarlega en gert er ráð fyrir að forráðamenn skili inn upplýsingum úr staðgreiðsluskrám tvisvar á ári þ.e. fyrir 15 júní og 15. desember ár hvert. 

Sótt er um afsláttinn inn í þjónustugátt  Ísafjarðarbæjar. 

Allar nánari upplýsingar gefur Guðrún Birgisdóttir, skóla og sérkennslufulltrúiá netfanginu gudrunbi@isafjordur.is eða í síma : 450-8000.