Skipulag næstu daga
Laufás – næstu dagar
- Foreldrar láti ávallt vita, í upphafi dags, ef barn mæti ekki. Annað hvort með því að hringja og/eða skrá í Karellen.
- Foreldrar skila börnum af sér í forstofunni og sækja þangað. Þ.e.a.s. foreldrar fara aldrei alveg inn í leikskólann. Það skipti mjög miklu máli að upplýsa þann starfsmann sem tekur á móti barninu um það hvenær það verði sótt. Það er þá tilbúið á þeim tíma.
- Það er ekki farið í íþróttahús næstu vikurnar.
- Búið er að færa borð í matsal í sundur til að fækka nemendum á hverju borði.
- Allir þvo sér vel um hendur með sápu, um leið og þeir mæta í leikskólann.
- Ef barn er með kvef eða/og önnur flensueinkenni SKAL það vera heima og má ekki undir neinum kringumstæðum mæta í leikskólann.
Að öðru leyti reynum við að halda skipulagi eins og kostur er.
Með von um að þið sýnið þessum ráðstöfunum skilning og farið eftir þeim.